Klassísku herbergin
Classic herbergin eru einstaklega þægileg og útbúin öllum þeim þægindum sem gestir þurfa til að gera dvölina sem notalegasta. Herbergin koma með tvíbreiðu „queen size“ rúmi og marmarlögðu baðherbergi ásamt sturtu.
Aðbúnaður: Loftkæling, minibar, öryggishólf, flatskjár, hárþurrka, veðurathugunarstöð og I-pod hátalarar. Þráðlaust Internet er aðgengilegt á hótelinu og í öllum herbergjunum gegn gjaldi.













