Starfsfólk okkar í gestamóttökunni leggur metnað sinn í að veita sem bestu þjónustu til að tryggja að dvölin þín verði sem ánægjulegust. Starfsfólk okkar er ávallt reiðubúið að veita upplýsingar um alla þá hjálp sem þú þarft á að halda, hvort sem það varðar að panta flugvallarferðir, skoðunarferðir, panta miða á óperu, dýrapössun, barnapössun, panta blómvönd eða bara hvað sem er. Starfsfólk okkar hefur einnig góða þekkingu á þeim fjölda veitingahúsa sem finna má í grennd við hótelið, ekki hika við að fá hugmyndir af fjölda veitingastaða sem finna má í allri Róm.
Að auki getum við útvegað aðra sérþjónustu ef þörf er á, líkt og verslunarleiðangur með eigin ráðgjafa, þýðanda eða túlk, menningarferðir um Róm og nágrenni, póstþjónustu eða sérstakar gjafir við hvaða tækifæri sem er. Það er í raun ekkert sem við getum ekki aðstoðað þig við.
Ef þú vilt panta eitthvað að ofangreindu endilega hafðu samband við okkur í gegnum tölvupóst.















